föstudagur, maí 23, 2008

júróvisjón - jibbí!


eins og alþjóð veit er júróvisjón búið að vera í gangi alla vikuna og endahnúturinn verður bundinn á laugardag. æðislegt að íslendingar skyldu loksins komast upp úr undankeppninni, þá fyrst hefur maður afsökun fyrir því að fá sér í aðra tána í tilefni kvöldsins.

ég verð samt að játa að ég mun ekki fara í teitina til örvars og kötlu (það nagar mig efinn, en svona er þetta) heldur ætla ég að vera á eyjunni fögru og nýt keppninnar hér. ég hef samt valið mér land og það er PORTÚGAL. ég vil ekki meina að ég sé undir neinum þrýstingi frá fjölskyldunni heldur er þetta lag algjör snilld og ekki varð það síðra þegar ég fékk að vita um hvað það er. ég kaus það 6x í undankeppninni (hálfskælandi af geðshræringu, svo hrifin var ég) og mun kjósa það sem mest ég má annað kvöld. og allir að kjósa Vânia Fernandes með mér!!!
góða skemmtun!

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ef keppnin verður í Lisboa..þá förum við you and me together forever??

Díll?? :O)

Hehe..

Stella.

Nafnlaus sagði...

Ef keppnin verður í Lisboa..þá förum við you and me together forever??

Díll?? :O)

Hehe..

Stella.

Drífa Þöll sagði...

pottþétt!!!

Nafnlaus sagði...

um hvad er lagid? hun var allavega reid!

Drífa Þöll sagði...

hún var sorgmædd af því að maðurinn hennar hvarf í hafið og fannst aldrei aftur. hún er að syngja til gyðju hafsins um ástina sína. þetta höfðar mikið til míns sjómannskonuhjarta.

Nafnlaus sagði...

skil ad thetta høfdi til thin. lika mjøg fallegt lag... en kaus thad samt ekki... kaus Island... i fyrsta skiptid i mørg ár... en fannst osanngjarnt ad portugal skuli ekki hafa verid ofar.