mánudagur, október 29, 2007

síðan síðast

það hefur verið frekar rólegt hjá okkur hjónaleysunum undanfarið. helgin var þó viðburðarrík. við fórum í partý með áhöfninni á huginn ve á föstudagskvöld. það var rosagaman, góður matur og góður félagsskapur. ég var líka að hitta margt af þessu fólki í fyrsta sinn, það verður örugglega ennþá skemmtilegra að hitta þetta fólk og eyða tíma með því á sjómannadaginn!
ég fór þó tiltölulega snemma heim þar sem ég var að leggjast í langferð daginn eftir. jú, það var komið að bogguhittingnum.
ég flaug á bakka og tók bílaleigubíl, þennan líka fína yaris á sumardekkjum (svitn...). svo lá leiðin á hljómsveitaræfingu á flúðum. elín og guðrún tóku vel á móti mér ásamt ronju og bergnýju. svo eyddum við deginum í spjall og undirbúning fyrir matinn. þegar leið að kvöldmat komu fanney og árni með krakkana sína tvo (sem ég var að sjá í fyrsta skipti...(roðn)) og svo komu sigga og svenni með þríburana. það var því í nógu að snúast fyrir alla fullorðna þarna inni! þetta var ósköp notaleg kvöldstund og gaman að hitta þessar kjarnakonur. það eru liðin ansi mörg ár síðan við vorum allar undir sama þaki svo að það þurfti mikið að spjalla. þegar leið fram á kvöld fór barnafólkið aftur til síns heima en við hinar sátum áfram að kjafta, fórum í pottinn, kjöftuðum meira og elín sýndi snilldartakta sem skífuþeytari. takk stelpur (jú og strákar) fyrir frábært kvöld.
svo keyrði ég sem leið lá aftur á bakka daginn eftir í frekar mikilli hálku og snjó fyrir þennan eðalkagga. en þó að það sé gaman að fara í svona ferð þá er alltaf gott að komast heim á eyjuna fögru í faðm gunna síns.
nú getur maður farið að hlakka til næstu helgar en þá ætla kvennóskutlurnar að hittast í sumarbústað. jiiiiii hvað ég er spennt!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alltaf nóg að gera hjá þér í öllu.. en það er rétt hjá þér það er alltaf gott að koma aftur heim á eyjuna fögru, ekki það að ég geri það jafn oft og þú en það er samt mjög gott þegar að það kemur að því..
en vonadi fer ég að koma mér til eyja þá getum við tekið eitt tjútt saman eins við vorum vanar að gera...

Nafnlaus sagði...

Bara brjálað að gera í skemmtanalífinu :O)

Væri gaman ef þú myndir droppa við einhvern tímann á leið þinni í um borgina :O)

Stella.

Nafnlaus sagði...

Sælar, nóg að gera sé ég, langaði bara að segja þér að ég var að lesa bloggið þitt, mjög skemmtilegt,
kv. Diljá